Kertasmiðjan
Í Kertasmiðjunni er fjölbreytt úrval kerta auk þess sem gestum býðst að gera sín eigin kerti.
Verksmiðjan hefur verið starfrækt um áratugaskeið. Verslunin er opin yfir sumartímann en á veturna er þar eingöngu kertaframleiðsla. Hægt er að koma að vetrarlagi og versla eða skoða vöruúrval með því að hringja á undan sér til að tryggja að einhver sé á staðnum að vinna.